Það verður norðlenskt stuð með tilheyrandi hörðum samhljóðum á sviðinu á NASA á föstudagskvöldið þegar Ljótu hálfvitarnir og Hvanndalsbræður halda þar sameiginlega tónleika.
Báðar hljómsveitirnar fara mikinn þessa dagana. Hálfvitar gera sig breiða í hverri spurningakeppninni á fætur annarri auk þess sem að spila fyrir fullum húsum hér og þar, og Hvanndalsbræður prýða vinsældarlistana með "La la laginu" og "Vinkonu". Sameiginlegt markmið sveitanna er að skemmta sér og öðrum og einbeitingin í þá átt er gríðarleg. Það má eiginlega skora á fólk að láta sér leiðast á tónleikunum. Enginn verðlaun eru samt í boði fyrir þá sem ekki skemmta sér, enda frekar heimskulegt markmið.
Tónleikarnir á NASA hefjast kl. 21.30. Miðasala er á midi.is og við innganginn ef tilefni er til.
Samstarf þessara norðlensku fjörsveita endar samt ekkert við Austurvöll. Kvöldið efir verða þær nefnilega í Miðgarði í Skagafirði með samskonar, eða allavega keimlíkan, konsert.