Beint á leiðarkerfi vefsins

16.febrúar 2010

Ljótu hálfvitarnir og Dætrasynir á Rósenberg

Föstudags- og laugardagskvöld verða Ljótu hálfvitarnir eins og svo oft áður með tónleika á Café Rosenberg við Klapparstíginn. Fastagestir vita hverju má búast við en aðra er rétt að vara við að þarna verða níu fyrirferðarmiklir karlmenn á of litlu sviði með alltof mörg hljóðfæri sem þeir muna ekkert hver á að nota í það og það skiptið. Öðru hverju rofar til og karlarnir ná að spila lög og syngja við þau óprenthæfa texta um ástir og örlög, drykkjuskap og sjómennsku. Og fólkið hlær og skemmtir sér.

Góðu heilli hafa Hálfvitarnir fengið sér til fulltingis Dætrasyni - nýstofnað tríó þeirra Baldurs Ragnarssonar, Flosa Þorgeirssonar og Lofts S. Loftssonar. Dætrasynir flytja vandaða rokktónlist með áherslu á karlmennsku og átthagafræði. Þannig að kvöld á Rosenberg verður ekki hreinræktuð tímasóun þessa helgina.

Dætrasynir hefja leik kl. 22 og Hálfvitar í beinu framhaldi. En forsjálir gestir verða komnir vel fyrir þann tíma og þeir allra forsjálustu panta sér borð og fá sér kvöldverð áður en spilamennskan hefst, enda eldhúsið á Rosenberg framúrskarandi.

Athugasemdir


Hægri dálkur