Fimmtudaginn 8. apríl nk. heldur húsvíska gáfnatregasveitin Ljótu hálfvitarnir tónleika í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal.
Þetta eru aðrir tónleikar Hálfvitanna þar og gengu þeir fyrri ekki verr en svo að ákveðið var að endurtaka leikinn. Þó verður lagaval að einhverju leyti frábrugðið þar sem lagalistinn frá því síðast virðist vera glataður og hefur leyndarskjalaverði hljómsveitarinnar verið veitt áminning fyrir embættisglöp.
Þetta verða síðustu tónleikar Hálfvitanna áður en þeir halda í hljóðver til að hljóðrita þriðju hljómplötu sína. Það má því reikna með að þeir noti tækifærið og viðri eitthvað af því efni sem þeir hafa verið að vinna að fyrir hana auk þess sem gamlar lummur og útjöskuð sjómannalög fá vafalaust að hljóma, borgfirskum bændum til mæðu.