Ný plata með Ljótu hálfvitunum er komin í verslanir. Eins og tvær fyrri plötur hljómsveitarinnar heitir hún ekki neitt, og er auk þess keimlík þeim í útliti. Þó má með góðum vilja greina á milli albúmanna. Liturinn á nafni hljómsveitarinnar er ólíkur (grænn á nýju plötunni), myndin af Hálfvitunum er ekki sú sama (nektarmynd á þeirri nýju) og svo eru ekki sömu lög á þeim (miklu betri á nýju plötunni).
Partílagið Gott kvöld er farið að heyrast í útvarpinu og gefur tóninn fyrir gott hálfvitasumar, en þar er sungið um samkvæmi sem fer svolítið úr böndunum. Annars eru yrkisefni Hálfvitanna á svipuðum slóðum og áður. Gleði, bjór, konur, dans og ást. Meira að segja hafið kemur við sögu, en hálfvitarnir þykja flinkir í sjómannalögum.
Þó Hálfvitarnir séu níu talsins þótti þeim nauðsynlegt að fá liðsauka. Þriggja manna brasssveit setur svip á nokkur lög, gestatrommarar grípa í kjuða og efnileg söngkona að norðan, Halla Marín Hafþórsdóttir syngur með í einu lagi. Og svo kemur sjálfur KK við sögu í tveimur lögum, syngur, spilar á gítar og blæs í munnhörpu af sinni alkunnu snilld.
Plötunni verður að sjálfsögðu fylgt eftir með tónleikahaldi í sumar. Það hefst með tvöföldum útgáfutónleikum. Þeir fyrri verða í Íslensku óperunni laugardaginn 5. júní og viku síðar halda Hálfvitar á heimaslóðir og spila að Ýdölum í Aðaldal norður. Verða þessir útgáfutónleikar að vanda talsvert veglegri en venjulegir Hálfvitatónleikar, gestir kíkja í heimsókn og allir fara í sparifötin og svona. Miða á báða tónleikana má kaupa á www.midi.is.