Beint á leiðarkerfi vefsins

Tónleikar

<< Fyrra Nýjustu tónleikarnir Næsta >>
Sjá tónleika eftir árum | mánuðum | dögum

28.júlí 2010 - kl. 21

Höllin, Vestmannaeyjum

Hvanndalsbræður og Ljótu hálfvitarnir í Eyjum

Árum saman hafa þessar tvær af vinsælustu „norðlensku" hljómsveitum landsins, leitað leiða til að halda sameiginlega tónleika í höfuðstað Vestmannaeyjaklasans en þrátt fyrir ráðleggingar frá helstu stjörnuspekingum, fjármálaráðgjöfum og borðtennislandsliðinu hefur ekki tekist að koma saman trúverðugri dagsetningu á slíkan konsert.

Þangað til núna. Skyndilega skýst upp á yfirborðið miðvikudagurinn 28. júlí og einhvern veginn bara smellpassar, svona mátulega rétt fyrir Verslunarmannahelgina en um hana ku gjarnan vera fjör í Eyjum. Staðurinn er að sjálfsögðu Höllin, tímasetningin 21.00 og miðaverð í forsölu 2.500 kr. þannig að það margborgar sig að vera tímanlega í því að tryggja sér miða þar sem miðaverð við dyrnar er 3.500 og þar með er verið að eyða alltof miklum peningi í vitleysu.

Báðar hljómsveitirnar hyggjast spila alls konar lög og segja brandara sem hafnað hefur verið af ritstjórn Séð og heyrt.

Forsala á midi.is og hjá Volcano Eldbakan.

29.júlí 2010 - kl. 22

Rosenberg, Klapparstíg

Ljótu hálfvitarnir á Rosenberg

Ljótu hálfvitarnir loksins á Rosenberg enn og aftur. Ekkert meira um það að segja...

30.júlí 2010 - kl. 22

Rosenberg, Klapparstíg

Ljótu hálfvitarnir á Rosenberg

Já við spilum langoftast tvö kvöld í röð á Rosenberg, engin ástæða til að vera svona hissa...

31.júlí 2010 - kl. 21

Félagsheimilið, Flúðum

Ljótu hálfvitarnir á Flúðum

Ljótu hálfvitarnir enda Verslunarmannahelgartúrinn sinn á Flúðum þar sem Hrunamenn ráða ríkjum. Þar er ætlunin að halda tvenna tónleika líkt og gert var með svo prýðilegum árangri í fyrra. Spiluð verða lög af öllum plötunum sem hálfvitar hafa nokkurn tímann gefið út og áhersla lögð á að hleypa dýrinu út.

Húsið opnað kl. 20.00, tónleikar byrja kl. 21.00 og miðaverð er 2.000 kr.

1.ágúst 2010 - kl. 21

Félagsheimilið, Flúðum

Ljótu hálfvitarnir á Flúðum - Aftur...

Lokatónleikar Verslunarmannahelgartúrs Ljótu hálfvitanna verða í Félagsheimilinu á Flúðum, enda finnst þeim voða þægilegt að spila tvö kvöld í röð á sama staðnum og þurfa ekki að róta. Stefnt er á að toppa allt sem gert hefur verið til þessa í taumlausri en þó vandaðri spilamennsku...

Húsið opnað kl. 20, tónleikar byrja kl. 21 og miðaverð er 2000 kr.


Hægri dálkur