Árum saman hafa þessar tvær af vinsælustu „norðlensku" hljómsveitum landsins, leitað leiða til að halda sameiginlega tónleika í höfuðstað Vestmannaeyjaklasans en þrátt fyrir ráðleggingar frá helstu stjörnuspekingum, fjármálaráðgjöfum og borðtennislandsliðinu hefur ekki tekist að koma saman trúverðugri dagsetningu á slíkan konsert.
Þangað til núna. Skyndilega skýst upp á yfirborðið miðvikudagurinn 28. júlí og einhvern veginn bara smellpassar, svona mátulega rétt fyrir Verslunarmannahelgina en um hana ku gjarnan vera fjör í Eyjum. Staðurinn er að sjálfsögðu Höllin, tímasetningin 21.00 og miðaverð í forsölu 2.500 kr. þannig að það margborgar sig að vera tímanlega í því að tryggja sér miða þar sem miðaverð við dyrnar er 3.500 og þar með er verið að eyða alltof miklum peningi í vitleysu.
Báðar hljómsveitirnar hyggjast spila alls konar lög og segja brandara sem hafnað hefur verið af ritstjórn Séð og heyrt.
Forsala á midi.is og hjá Volcano Eldbakan.